Fyrirsögnin segir það sem segja þarf! Football365 valdi.
10) Oliver Skipp (Tottenham) - Mauricio Pochettino hefur talað um hversu þroskaður Skipp sé sem leikmaður þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára. Skipp er búinn að spila fimm aðalliðsleiki.
9) Mason Greenwood (Man Utd) - Þessum 17 ára strák hefur verið líkt við Robin van Persie. Hefur komist á bekkinn hjá aðalliðinu en hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingalið United.
8) Morgan Gibbs-White (Wolves) - Þessi 18 ára strákur hefur unnið sér inn stórt hlutverk hjá Úlfunum og á bjarta framtíð.
7) Ethan Ampadu (Chelsea) - Chelsea hefur ekki viljað hleypa þessum efnilega leikmanni á lán en hann getur bæði spilað í vörn og á miðju.
6) Reiss Nelson (Arsenal) - Þessi 19 ára leikmaður er á láni hjá Schalke í Þýskalandi. Framherji sem er kominn með sex mörg í þýsku Bundesligunni.
5) Callum Hudson-Odoi (Chelsea) - Hefur enn ekki byrjað úrvalsdeildarleik en Bayern München er tilbúið að borga 35 milljónir punda fyrir hann. Það segir sitt!
4) Diogo Dalot (Man Utd) - Stuðningsmenn United hafa fengið að sjá hversu mikið efni Dalot er. Portúgalinn á bjarta framtíð á Old Trafford.
3) Matteo Guendouzi (Arsenal) - Þegar hann var keyptur var talað um að hann væri fyrir framtíðina. En hann var fljótur að vinna sér inn byrjunarliðssæti og spilað helling.
2) Ryan Sessegnon (Fulham) - Ekki alveg náð að sýna sitt besta í úrvalsdeildinni en er aðeins 18 ára og þegar kominn með hátt í 100 leiki fyrir Fulham.
Athugasemdir