Það er nóg um að vera í spænska boltanum í dag og kvöld þar sem sjö bikarleikir eru á dagskrá. Stórleikur dagsins hefst klukkan 20:00 þegar Barcelona mætir Athletic Bilbao í úrslitaleik spænska Ofurbikarsins.
Barca lagði Real Sociedad að velli eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitum á meðan Athletic hafði betur gegn Real Madrid.
Fyrr um daginn fara sex leikir fram í Konungsbikarnum. Þar eru áhugaverðir leikir á dagskrá þar sem Granada, Osasuna og Real Betis eiga nokkuð erfiða leiki.
Konungsbikarinn hefur alls ekki verið eftir bókinni í ár og eru mörg efstudeildarlið þegar dottin úr áður en 32-liða úrslitin klárast.
Leikir dagsins:
Ofurbikarinn:
20:00 Barcelona - Athletic Bilbao
Konungsbikarinn:
11:00 Malaga - Granada CF
11:00 Espanyol - Osasuna
15:00 Sporting Gijon - Betis
15:00 Navalcarnero - Eibar
17:00 AD Alcorcon - Valencia
17:00 Tenerife - Villarreal
Athugasemdir