Fotbolti.net
17.02.20 - 19:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Chelsea og Man Utd: Þrír óvæntir hjá Chelsea - Bailly byrjar

Willy Caballero ver mark Chelsea í kvöld.

Willy Caballero ver mark Chelsea í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaleikur 26. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar hefst klukkan 20:00. Þá mætast Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge.

Liðið eru í 4. og 9. sæti fyrir leikinn en með sigri helmingar United forskot Chelsea, sex stig munar á liðunum.
Chelsea hefur ekki sigrað í síðustu þremur deildarleikjum en liðið hefur gert tvö jafntefli í röð eftir tap gegn Newcastle. Frank Lampard, stjóri liðsins, gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Leicester.

Michy Batshuayi byrjar fremstur í stað Tammy Abraham sem er ekki með í kvöld, Willian kemur inn í stað Callum Hudson-Odoi og Mateo Kovacic byrjar í stað Mason Mount. Þá byrjar Willy Caballero annan leikinn í röð í marki Chelsea.

Batshuayi, Pedro og Caballero hafa ekki mikið komið við sögu hjá Lampard en Pedro og Caballero eru þó að spila sinn annan leik í röð í byrjunarliðinu.

Manchester United er án sigurs í þremur leikjum í deildinni. Liðið tapaði gegn Liverpool og Burnley en svo kom jafntefli gegn Wolves í síðustu umferð. Ole Gunnar Solskjær, stjóri liðsins, gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Wolves.

Eric Bailly byrjar í stað Victor Lindelöf, Brandon Williams kemur inn í stað Juan Mata og Nemanja Matic tekur stöðu Andreas Perreira. Þá er Odion Ighalo á varamannabekknum hjá United.

Byrjunarlið Chelsea: Caballero, Azpilicueta, Rudiger, Christensen, James, Kante, Jorginho, Kovacic, Pedro, Willian, Batshuayi.

(Varamenn: Kepa, Tomori, Zouma, Alonso, Barkley, Mount, Giroud. )

Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Wan Bissaka, Bailly, Maguire, Shaw, Williams, Fred, Matic, Fernandes, James, Martial

(Varamenn: Romero, Jones, Mata, Pereira, Dalot, Ighalo, Greenwood. )
Odion Ighalo er á bekknum.

Odion Ighalo er á bekknum.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.