Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. febrúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dybala ekki alveg klár í slaginn - Ramsey mættur aftur
Paulo Dybala er ekki alveg klár í slaginn.
Paulo Dybala er ekki alveg klár í slaginn.
Mynd: Getty Images
Juventus verður án fjögurra sterkra leikmanna í fyrri leik liðsins gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Paulo Dybala er byrjaður að æfa aftur eftir hnémeiðsli en ekki tilbúinn fyrir leikinn gegn Porto.

Andrea Pirlo, stjóri Juventus, segir að varnarmaðurinn Leonardo Boncucci sé smávægilega meiddur og ekki klár í slaginn í kvöld.

Þá eru miðjumaðurinn Arthur og kantmaðurinn Juan Cuadrado einnig frá en miðjumaðurinn Aaron Ramsey ferðaðist með liðinu í leikinn eftir að hafa jafnað sig á meiðslum.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 20:00 og fer fram á Drekavöllum, heimavelli Porto í Portúgal.
Athugasemdir
banner
banner
banner