Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 17. febrúar 2021 15:15
Elvar Geir Magnússon
Lloris með trú og traust frá Mourinho
Hugo Lloris.
Hugo Lloris.
Mynd: Getty Images
Franski markvörðurinn Hugo Lloris, markvörður Tottenham, hefur fengið talsverða gagnrýni að undanförnu.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, ber enn fullt traust til hans en Lloris fékk stuðningsyfirlýsingu á fréttamannafundi í dag.

„Toppleikmaður hættir ekki að vera toppleikmaður þó hann geri nokkur mistök," segir Mourinho.

„Í mínum huga er Alisson (í Liverpool) einn af topp fimm bestu markvörðum heims. Í síðustu leikjum, ekki í gær, hefur hann gert stór mistök. Hann er samt einn besti markvörður heims."

„Það sama gildir um Hugo. Hann hefur verið gríðarlega stöðugur síðan hann kom úr meiðslum. Hann er minn markvörður númer eitt og hann hefur allt traust og alla trú frá mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner