Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. febrúar 2021 12:53
Elvar Geir Magnússon
Mbappe: Hef alltaf sagt að ég er ánægður hér
Mbappe fékk að eiga boltann eftir þrennuna.
Mbappe fékk að eiga boltann eftir þrennuna.
Mynd: Getty Images
Kylian Mbappe skoraði þrennu gegn Barcelona í gær en eftir leikinn sagðist hann vera ánægður í hebrúðum Paris Saint-Germain.

PSG vann 4-1 útisigur og var franski sóknarmaðurinn hreinlega geggjaður í leiknum. Það eru innan við 18 mánuðir eftir af samningi hans.

Hann hefur verið orðaður við Real Madrid og mörg önnur stórlið.

„Það væri heimskulegt að ákveða framtíð mína á einum leik," segir Mbappe.

„Maður þarf að hugsa til langs tíma. Ég hef alltaf sagt að ég er ánægður hérna. Svona leikir gera mig enn ánægðari."

Ronald Koeman, stjóri Barcelona, segir að varnarmistök hafi gert það að verkum að Meistaradeildardraumar félagsins séu svo gott sem úti. Börsungar þurfa kraftaverk til að snúa dæminu við í seinni leiknum í París.
Athugasemdir
banner
banner