Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. mars 2019 16:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Lazio skoraði fjögur gegn Parma
Mynd: Getty Images
Lazio skoraði fjögur mörk á 22 mínútna kafla er liðið fékk Parma í heimsókn í Serie A í dag.

Adam Marusic gerði fyrsta mark leiksins áður en Luis Alberto tvöfaldaði forystuna úr vítaspyrnu.

Luis Alberto var aftur á ferðinni til að þrefalda forystuna og gerði Senad Lulic glæsilegt mark rétt fyrir leikhlé og staðan orðin 4-0.

Mattia Sprocati gerði eina mark síðari hálfleiksins og klóraði þannig í bakkann fyrir Parma.

Sigurinn kemur Lazio yfir Atalanta og Torino og upp í 6. sæti, þar sem aðeins 5 stig eru í Inter sem situr í Meistaradeildarsæti. Parma er aftur á móti í neðri hluta deildarinnar, níu stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Empoli hafði þá betur gegn Frosinone í fallbaráttunni og Atalanta gerði jafntefli við Chievo. Empoli er einu stigi fyrir ofan fallsvæðið en Chievo og Frosinone eru svo gott sem fallin. Atalanta datt úr Evrópudeildarsæti með jafnteflinu.

Atalanta 1 - 1 Chievo
0-1 Riccardo Meggiorini ('32 )
1-1 Josip Ilicic ('55 )

Empoli 2 - 1 Frosinone
1-0 Francesco Caputo ('20 )
2-0 Marko Pajac ('38 )
2-1 Luca Valzania ('70 )

Lazio 4 - 1 Parma
1-0 Adam Marusic ('22 )
2-0 Luis Alberto ('26 , víti)
3-0 Luis Alberto ('38 )
4-0 Senad Lulic ('44 )
4-1 Mattia Sprocati ('77 )
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner