Anthony Martial hefur dregið sig út úr franska landsliðshópnum vegna hnémeiðsla.
Franska knattspyrnusambandiðs segir að ákvörðunin hafi verið tekin af læknum franska landsliðsins og læknum Manchester United. Martial fann fyrir sársauka í bikarleiknum gegn Wolves í gær.
Martial mun því missa af næstu tveimur leikjum franska landsliðsins gegn Íslandi og síðan Moldavíu.
Þetta er í fyrsta skipti í ár síðan að Martial er valinn í landsliðshópinn en hann hefur átt flott tímabil með Manchester United, sérstaklega eftir að Solskjær tók við.
Thomas Lemar, leikmaður Atletico Madrid, mun taka sæti Martial í hópnum.
Athugasemdir