banner
   þri 17. mars 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Chelsea ætlar að gera stórt tilboð í Leon Bailey
Leon Bailey.
Leon Bailey.
Mynd: Getty Images
Chelsea er sagt vera að undirbúa 85 millóna punda tilboð í vængmanninn Leon Bailey hjá Bayer Leverkusen.

Baily er landsliðsmaður Jamaíka en þessi 22 ára leikmaður hefur skorað sjö mörk í 22 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.

Sagt er að Liverpool, Manchester United og Arsenal hafi einnig sýnt honum áhuga.

Bayern München er einnig sagt hafa áhuga en The Express segir að Leverkusen vilji frekar selja leikmanninn út fyrir Þýskaland.

Njósnarar Chelsea voru ánægðir með frammistöðu Bailey í Evrópuleik gegn Rangers í síðustu viku. Hann skoraði þá þriðja markið í 3-1 sigri Leverkusen.

Bailey vakti athygli hjá Genk í Belgíu og var keyptur til Leverkusen í janúar 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner