Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. mars 2020 17:30
Elvar Geir Magnússon
Handanovic semur við Inter til 2022
Mynd: Getty Images
Samir Handanovic, markvörður Inter, hefur gert nýjan samning og er nú bundinn á San Siro til 2022.

Þetta er framlenging um eitt ár á fyrrum samningi hans.

Þessi 36 ára Slóveni verður því hjá Inter í allavega tíu ár en hann kom frá Udinese sumarið 2012.

Handanovic fékk aðeins 20 mörk á sig í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili og hefur haldið marki sínu hreinu sjö sinnum í 22 deildarleikjum á þessu tímabili.

Ítalskir fjölmiðlar segja að Inter horfi til Juan Musso, markvarðar Udinese, og vilji fá hann til að vera varamarkmaður á San Siro.
Athugasemdir
banner
banner
banner