þri 17. mars 2020 10:36
Magnús Már Einarsson
Man Utd nýtir sér ákvæði hjá Matic - Áfram á Old Trafford
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ákveðið að nýta ákvæði í samningi miðjumannsins Nemanja Matic og framlengja samninginn um eitt ár.

Matic átti fjóra mánuði eftir af samningi sínum en nú er samningur hans til sumarsins 2021.

Hinn 31 ár gamli Matic hefur komið sterkur inn í lið Manchester United undanfarnar vikur í fjarveru Paul Pogba og Scott McTominay.

Manchester United ætlar að ræða við Matic um ennþá lengri framlengingu á samningi hans eftir frammistöðu að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner