mið 17. apríl 2019 10:00
Arnar Daði Arnarsson
Draumaliðsdeildin - Arna Sif velur sitt lið
Draumalið Örnu Sifjar.
Draumalið Örnu Sifjar.
Mynd: Draumaliðsdeildin
Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Draumaliðsdeild Eyjabita opnaði í síðustu viku og rúmlega 1400 lið eru nú þegar skráð til leiks.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Arna Sif Ásgrímsdóttir landsliðsmiðvörður og leikmaður Þórs/KA í Pepsi Max-deild kvenna er búin að velja sitt draumalið í leiknum.

Í markinu er Arna Sif með aldursforsetann í deildinni Gunnleif Gunnleifsson. „Gulli elskar hrein lök og ég treysti á mörg svoleiðis í sumar."

„Varnalínan inniheldur hafsenta sem geta skorað mörk og elska líka að halda hreinu. Svo hef ég heyrt að Ýmir Már ætli að hætta að vera alltaf meiddur og fara gera eitthvað af viti í sumar."

Miðjan hjá Örnu er síðan ógnarsterk og treystir hún því að miðjan skili henni mörgum stigum í sumar.

„Miðjan samanstendur af leikmönnum sem geta bæði skorað og lagt upp. Hilmar, Guðjón og Daníel eru allir að fara hala inn stigum. Svo er ég í team Baldur, svo það var easy pick."

Í framlínunni treystir hún síðan á tvo Dani. „Ég ætla að treysta á mine danske venner uppá topp. Hafa báðir verið sjóðandi á undirbúningstímabilinu og ég sé enga breytingu á því," sagði Arna Sif.

Sjá einnig:
Draumalið Rúnars Alex Rúnarssonar
Draumalið Elíasar Más Ómarssonar
Draumalið Öglu Maríu Albertsdóttur
Draumalið Olivers Sigurjónssonar
Draumalið Arnórs Ingva Traustasonar
Athugasemdir
banner
banner
banner