mið 17. apríl 2019 14:00
Arnar Daði Arnarsson
Draumaliðsdeildin - Óttar Magnús velur sitt lið
Draumalið Óttars Magnúsar.
Draumalið Óttars Magnúsar.
Mynd: Draumaliðsdeildin
Óttar Magnús Karlsson.
Óttar Magnús Karlsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Draumaliðsdeild Eyjabita opnaði í síðustu viku og rúmlega 1400 lið eru nú þegar skráð til leiks.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Óttar Magnús Karlsson og leikmaður Mjällby í Svíþjóð er búin að velja sitt draumalið í leiknum.

Óttar Magnús velur landsliðsmarkvörðinn Hannes Þór Halldórsson leikmann Vals í markið. „Hannes augljóst val í markinu, heldur rammanum líklega hreinum meira og minna í allt sumar."

Hann stillir síðan upp þriggja manna varnarlínu með þá Þórarin Inga, Eið Aron og Jonathan Hendrickx.

„Eiður er þarna með uppá clean sheat stigin og svo er ég með tvo sóknarsinnaða bakverði með sem vonandi dæla inn stigum fyrir mig."

Á miðjunni er hann með Kaj Leo í Bartalsstovu, Erling Agnarsson, Helga Val Daníelsson, Óskar Örn Hauksson og Alexander Helga Sigurðarson.

„Miðjan erum við með Helga Val djúpan, það hefur verið talað vel um hann í vetur og vonandi stendur hann undir því. Svo vona ég að Erlingur og Alexander spili sem mest því þá er ég viss um að þeir standa sig. Óskar Örn og Kaj Leo fá sénsinn og býst við miklu frá þeim."

Óttar stillir síðan upp svakalegri sóknarlínu með Thomas Mikkelsen og Steven Lennon. „Ekkert að flækja þetta neitt mikið í framlínunni, ég sé þarna 15+ mörk samanlagt," sagði Óttar Magnús.

Sjá einnig:
Draumalið Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur
Draumalið Rúnars Alex Rúnarssonar
Draumalið Elíasar Más Ómarssonar
Draumalið Öglu Maríu Albertsdóttur
Draumalið Olivers Sigurjónssonar
Draumalið Arnórs Ingva Traustasonar
Athugasemdir
banner
banner