Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. apríl 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Ham boðið að fá Dzeko frá Roma
Mynd: Getty Images
West Ham hefur verið að boðið að kaupa Edin Dzeko, sóknarmann frá Roma. Þetta herma heimildir Sky Sports.

Samningur hins 33 ára gamla Dzeko við Roma rennur út eftir næsta tímabil.

Hann þekkir ensku úrvalsdeildina eftir að hafa leikið með Manchester City áður en hann fór til Roma 2015. Það sem meira er, er að Dzeko þekkir Manuel Pellegrini, stjóra West Ham. Hann og Pellegrini unnu saman hjá City.

Dzeko skoraði 32 mörk í 80 leikjum undir stjórn Pellegrini og hjálpaði City að verða Englandsmeistari 2013/14.

Dzeko hefur skorað 86 mörk í 171 leik í öllum keppnum á fjórum árum hjá Roma.

West Ham er í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner