Það hafði líklega enginn meiri trú á Leeds í Championship-umspilinu en Jamie Richardson frá Jórvíkurskíri.
Hann var svo viss um að Leeds myndi loksins snúa aftur í ensku úrvalsdeildina að hann fékk sér húðflúr þess efnis.
Það er spurning hvort hann sjái eftir þeirri ákvörðun í dag því Leeds tapaði í vikunni í undanúrslitum umspilsins gegn Derby. Það verða Derby og Aston Villa sem mætast í úrslitaleik umspilsins á Wembley.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Richardson spáir í spilin í fóboltanum með því að fá sér húðflúr. Og ekki í fyrsta sinn sem spádómur hans rætist ekki.
Síðasta sumar fékk hann sér „Englands Heimsmeistarar 2018" húðflúr.
England féll úr leik í undanúrslitunum gegn Króatíu.
Er ekki bara sniðugara að bíða þangað til úrslitin eru ráðin?
Sjá einnig:
Húðflúraði bikarinn á sig áður en Liverpool missti af titlinum
No-one believes in Leeds United more than Jamie! 😂️⚽️ #LUFC pic.twitter.com/zxWYEqrmn8
— BBC Yorkshire (@BBCLookNorth) May 10, 2019
Athugasemdir