Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fös 17. maí 2019 22:52
Atli Arason
Arnar Hallsson: Mér fannst við betri en þeir í flestum þáttum leiksins
Pressuðum betur og spiluðum betur en þeir
Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar
Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Hallsson þjálfari Aftureldingar segir tilfinninguna vonda eftir leik kvöldsins.

Lestu um leikinn: Keflavík 5 -  0 Afturelding

Aðspurðu í lok leiks segir Arnar að „Tilfinningin er náttúrulega vond. Það er alltaf vont að tapa og við töpuðum illa en ég á eftir að senda leikinn út í greiningu. Við pressuðum betur en þeir, við spiluðum betur en þeir. Mér fannst þeir ná að skyggja á okkur í einum þætti leiksins og það voru skyndisóknir. Þeir eru góðir í því og tóku okkur þannig. Við vorum svolítið barnalegir en mér fannst við betri en þeir í flestum þáttum leiksins. Ég er viss um að tölurnar munu sýna það."

Mikið af vel heppnuðum sóknum Keflvíkinga fóru upp vinstri kantinn hjá þeim. Arnar hefur þó ekki miklar áhyggjur.

„Það er nu ekki í hverjum leik sem þessi bakvörður er til staðar. Við vissum alveg að hann myndi koma upp, við vorum með ákveðna áætlun um hvernig við ætluðum að takast á við það. Hún bara virkaði ekki hjá okkur, við náðum ekki að loka þessu svæði. Þetta er frábært og skemmtilegur sóknarbakvörður. Hann skapaði vandamál og við leystum þau ekki." Sagði Arnar og vitnar þar í Rúnar Þór Sigurgeirsson vinstri bakvörð Keflavíkur sem átti mjög góðan leik í kvöld.

Arnar var þó brattur í leikslok og er bjartsýnn á framhaldið hjá Aftureldingu í sumar.

„Við erum með gott lið og við getum staðið í flestum liðum deildarinnar. Þó þetta hafi verið niðurstaðan þá var aldrei fimm marka munur á þessum leik. Við erum bjartsýnir á þetta, við höfum spilað tvo útileiki gegn Þór og Keflavík og þetta eru erfið lið heim að sækja. Við þurfum bara að bæta okkur og það er verkefið. Ég er þess fullviss að við lærum af okkar mistökum, höldum áfram að þróa okkar leik og við munum standa okkur vel í sumar." Sagði Arnar Hallsson í lok leiks í kvöld. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner