Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 17. maí 2019 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fabinho ekki í landsliðshópi Brasilíu fyrir Copa Ameríka
Enginn Fabinho með Brasilíu í sumar
Enginn Fabinho með Brasilíu í sumar
Mynd: Getty Images
Neymar er einn allra mikilvægasti leikmaður Brasilíu.
Neymar er einn allra mikilvægasti leikmaður Brasilíu.
Mynd: Getty Images
Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu, hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir Copa Ameríka sem fer fram í sumar. Keppnin hefst 14. júní og fer fram í Brasilíu. Brasilía vann síðast keppnina árið 2007.

Stærstu nöfnin sem eru ekki með Brasilíu í sumar eru þeir Fabinho, miðjumaður Liverpool, Marcelo og VInicius Junior, leikmenn Real Madrid og Douglas Costa leikmaður Juventus. Þá eru þeir Felipe Anderson og Lucas Moura ekki í hópnum hjá Tite.

Hér á neðan má sjá landsliðshóp Brasilíu.

Markmenn: Alisson (Liverpool), Ederson (Man City), Cassio (Corinthians).

Varnarmenn: Daniel Alves (PSG), Fagner (Corinthians), Filipe Luís (Atlético Madrid), Alex Sandro (Juventus), Miranda (Inter Milan), Thiago Silva (PSG), Marquinhos (PSG), Éder Militão (Porto/Real Madrid).

Miðjumenn: Casemiro (Real Madrid), Fernandinho (Man City), Arthur (Barcelona), Allan (Napoli), Lucas Paquetá (Milan), Philippe Coutinho (Barcelona).

Framherjar: Neymar (PSG), Richarlison (Everton), David Neres (Ajax), Everton Soares (Grêmio), Roberto Firmino (Liverpool), Gabriel Jesus (Man City).
Athugasemdir
banner
banner