Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 17. maí 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeild kvenna um helgina - Úrslitaleikurinn
Lyon hefur unnið keppnina síðustu þrjú ár.
Lyon hefur unnið keppnina síðustu þrjú ár.
Mynd: Getty Images
Á morgun, laugardag, fer fram úrslitaleikurinn í Meistaradeild kvenna. Leikurinn verður sýndur í beinni á Stöð 2 Sport 2.

Lyon, félagið sem hefur unnið keppnina oftast, mætir Barcelona, sem er að fara að spila sinn fyrsta úrslitaleik.

Lyon er ríkjandi meistari eftir sigur á Söru Björk Gunnarsdóttur og stöllum hennar í Wolfsburg í fyrra. Lyon vann Wolfsburg í 8-liða úrslitunum í ár. Þess má geta að Lyon hefur unnið keppnina þrjú ár í röð.

Leikurinn á morgun fer fram á Groupama Arena í Búdapest í Ungverjalandi.

laugardagur 18. maí
16:00 Lyon - Barcelona (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner