banner
   fös 17. maí 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rafa í viðræðum við Newcastle um nýjan samning
Mynd: Getty Images
Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez átti fund með háttsettum aðilum hjá Newcastle í London í gær.

Samningur Benitez við Newcastle er að renna út. Sky Sports segir að það sé vilji hjá bæði Newcastle og Benitez að endursemja.

Benitez vill þó réttu verkfærin til að gera enn betur. Hann vill koma Newcastle í Evrópukeppni og jafnvel vinna bikar.

Það er líklegt að viðræðurnar haldi eitthvað áfram í dag og næstu daga.

Newcastle hafnaði í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í ár. Benitez, sem er fyrrum stjóri Liverpool og Real Madrid, hefur stýrt Newcastle með góðum árangri frá 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner