Fótbolti.net gerir upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni þessa vikuna, nú er komið að því að skoða hvaða leikmenn fengu flest stigin í Fantasy leiknum vinsæla.
10. Gylfi Þór Sigurðsson - Átti mjög gott tímabil, hann skoraði þrettán mörk og lagði upp sex. Gylfi fékk 182 stig í Fantasy leiknum.
9. Trent Alexander-Arnold - Frábær í liði Liverpool í vetur, lagði upp tólf og skoraði eitt. Hann fékk 185 stig.
7. Pierre Emerick-Aubameyang - Raðaði inn mörkunum í liði Arsenal í vetur og endaði markahæstur ásamt Mane og Salah, þeir skoruðu 22 mörk. Aubameyang fékk 205 stig.
6. Virgil van Dijk - Frábær í vörn Liverpool í vetur og var valinn besti leikmaður tímabilsins í úrvalsdeildinni. Hann fékk 208 stig.
5. Andrew Robertson - Mjög traustur í Liverpool vörninni og lagði upp ellefu mörk. Hann fékk 213 stig í Fantasy leiknum vinsæla.
4. Sadio Mane - Frábært tímabil hjá Mane sem skoraði 22 mörk og lagði upp eitt í 36 deildarleikjum. Mane fékk 231 stig í Fantasy leiknum.
3. Raheem Sterling - Stórkostlegur í Man City liðinu sem varð Englandsmeistari, skoraði 17 mörk og lagði upp 10. Sterling fékk 234 stig.
2. Eden Hazard - Aðalmaðurinn í liði Chelsea, skoraði 16 mörk og lagði upp 15. Hazard fékk 238 stig í Fantasy leiknum.
Athugasemdir