Dedryck Boyata, varnarmaður Herthu Berlínar í Þýskalandi, neitar því að hafa kysst Marko Grujic í 3-0 sigrinum á Hoffenheim í gær.
Nýliðarnir í Herthu fögnuðu vel og innilega í leiknum gegn Hoffenheim en Boyata virtist kyssa Grujic.
Peter Bosz, þjálfari Bayer Leverkusen, gagnrýndi þennan verknað í ljósi þeirra aðstæðna sem eru í heiminum.
Boyata hafnar þessu hins vegar og segist hafa verið að ræða föst leikatriði við miðjumanninn.
„Þetta var ekki koss eða fögnuður. Ég biðst afsökunar að hafa lagt hendur mínar á Grujic. Ég var að gefa honum skipanir fyrir fast leikatriði. Við verðum að fara varlega á meðan við spilum í þessu ástandi. Við verðum að aðlagast spilinu og þegar við fögnum," skrifaði Boyata.
Boyata: "Gaf aanwijzingen voor standaardsituatie, maar verontschuldig me dat ik mijn handen op Grujic zijn gezicht gelegd heb"https://t.co/UIQTqu6XDo pic.twitter.com/XKxQc9nvpe
— sporza (@sporza) May 17, 2020
Boyata auf Instagram: "It wasn't a kiss, neither a celebration. I apologize for putting my hands on Grujic's face. I was giving him instructions about a set piece. We must definitely be careful now that we play under this situation. We have to adapt our way to play or celebrate." pic.twitter.com/ayZHIF1UEL
— HERTHA BSC EDITS (@EditsBsc) May 17, 2020
Athugasemdir