Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 17. maí 2020 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
David Wagner: Vorum ekki nógu hugrakkir
Mynd: Getty Images
David Wagner, fyrrum knattspyrnustjóri Huddersfield og núverandi þjálfari Schalke, var svekktur eftir 4-0 tap gegn Borussia Dortmund í gær.

Þýski boltinn fór af stað í gær eftir rúmlega tveggja mánaða stopp vegna kórónuveirunnar. Wagner, sem fékk afar mikið lof fyrir starf sitt hjá Huddersfield, leitaði ekki að afsökunum að leikslokum.

„Þetta var ömurleg frammistaða og við áttum skilið að tapa. Við vorum ekki nógu hugrakkir í dag. Við verðum að dusta þetta af okkur og mæta tilbúnir í næsta leik," sagði Wagner að leikslokum.

Schalke er í áttunda sæti þýsku deildarinnar, tveimur stigum frá Evrópusæti. Lærisveinar Wagner geta þó gleymt Meistaradeildinni næsta haust enda fjórtán stigum á eftir RB Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner