Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 17. maí 2020 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Færeyjar: NSÍ Runavík vann öruggan sigur á EB/Streymur
Klaemint Olsen spilaði í sigri NSÍ í dag
Klaemint Olsen spilaði í sigri NSÍ í dag
Mynd: Getty Images
EB/Streymur 0 - 3 NSÍ Runavik
0-1 Morits Heini Mortensen ('3 )
0-2 Aron Knudsen ('25 )
0-3 Petur Knudsen ('63 )

Fyrrum lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar hjá NSÍ Runavíkk unnu EB/Streymur 3-0 í færeysku úrvalsdeildinni í síðasta leik dagsins.

Morits Heini Mortensen kom gestunum yfir strax á 3. mínútu áður en bræðurnir Aron og Petur Knudsen gerðu hin tvö mörkin.

Aron, yngri bróðir Peturs, skoraði á 25. mínútu áður en Petur skoraði á 63. mínútu.

NSÍ fer á toppinn með sigrinum en liðið er með tvo sigra úr fyrstu tveimur leikjunum á meðan EB/Streymur er án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner