Bayern München vann 2-0 sigur á Union Berlín í þýsku deildinni í dag en Robert Lewandowski og Benjamin Pavard skoruðu mörk gestanna.
Lewandowski skoraði 40. mark sitt á leiktíðinni með því að skora af vítapunktinum á meðan Pavard stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Joshua Kimmich.
Bayern er á toppnum með 58 stig þegar átta leikir eru eftir en hér fyrir neðan má sjá bæði mörkin.
Vítaspyrna Robert Lewandowski
Skallamark Benjamin Pavard
Athugasemdir