Fotbolti.net
17.05.21 - 22:10
Baldvin Már Borgarsson

Haukur Páll: Er þetta ekki eitt af mörkum tímabilsins?

Haukur Páll: Er þetta ekki eitt af mörkum tímabilsins?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals var kampakátur eftir 3-2 sigur gegn KR á Meistaravöllum fyrr í kvöld.

Haukur skoraði stórglæsilegt mark sem kom Val yfir í upphafi síðari hálfleiks.
„Það er alveg rétt hjá þér, það verður ekki mikið sætara en þetta að koma á einn erfiðasta völl landsins og sækja sigur, það var drullu erfitt en djöfulli feginn að ná í þrjú stig.''

Haukur smellti boltanum í skeytinn, var þetta ekki óvanalegt mark fyrir hann?

„Maður skorar ekki oft svona mörk, ég verð nú að viðurkenna það að fyrst þetta koma frá mér, verðum við þá ekki að setja þetta á eitt af mörkum tímabilsins?'' Sagði Haukur Páll hlægjandi.

„Nei það er rétt, ég er vanari að skora með skalla eftir föst leikatriði og eitthvað svona, það er virkilega sætt þegar maður nær svona góðu skoti og hann syngur uppi í samskeytunum, virkilega sætt að sjá hann inni.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Haukur betur um leikinn og leikmennina sem Valur á inni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.