Þýski kantmaðurinn Julian Draxler segist ekki vilja yfirgefa Paris Saint-Germain þrátt fyrir áhuga frá FC Bayern og Tottenham.
Draxler er 25 ára og hefur skorað 20 mörk í 107 leikjum fyrir PSG frá komu sinni í janúar 2017. Hann er ekki talinn vera í byrjunarliðsáformum Thomas Tuchel þjálfara.
Draxler á 51 landsleik að baki fyrir Þýskaland og myndi koma til með að kosta um 40 milljónir evra. Hann gekk í raðir PSG fyrir 36 milljónir.
„Ég hef engan áhuga á því að yfirgefa félagið. Mér líður vel hérna," sagði Draxler þegar hann var spurður út í framtíð sína.
Athugasemdir