Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 17. júní 2021 14:40
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Tíu leikmenn Sindra björguðu stigi
Mynd: Þorsteinn Jóhannsson
Sindri 1 - 1 Víðir
0-1 Arnór Björnsson ('34)
1-1 Mate Paponja ('49)
Rautt spjald: Sævar Gunnarsson, Sindri ('44)

Sindri tók á móti Víði í fyrri leik dagsins í 3. deildinni. Liðin eru á svipuðu reiki í neðri hluta deildarinnar.

Gestirnir úr Garði komust yfir með marki frá Arnóri Björnssyni og urðu þeir svo manni fleiri skömmu fyrir leikhlé, þegar Sævar Gunnarsson var rekinn af velli með beint rautt spjald.

Tíu leikmnen Sindra gáfust þó ekki upp og jöfnuðu í upphafi síðari hálfleiks. Mate Paponja skoraði jöfnunarmarkið.

Meira var ekki skorað í leiknum og gott stig fyrir Sindra eftir að hafa leikið allan seinni hálfleikinn færri.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner