Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 17. júlí 2018 23:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Alexis Sanchez æfir einn á Carrington æfingasvæðinu
Sanchez er í ágætis skapi þrátt fyrir vesenið.
Sanchez er í ágætis skapi þrátt fyrir vesenið.
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez er einn á æfingum á æfingarsvæði Manchester United en leikmaðurinn er í vandræðum með að fá vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.

Þrátt fyrir vesenið virðist Sanchez vera í nokkuð góðu skapi er hann henti í mynd á Instagram aðgangi sínum fyrr í dag. Skellti hann sér á tvær æfingar í dag en hann vinnur hörðum höndum að því að komast í toppform fyrir veturinn.

United hélt til Bandaríkjanna til þess að undirbúa sig fyrir fyrsta leikinn gegn Leicester City þann 10. ágúst næstkomandi og eru mættir til Los Angeles.

Sanchez og lögfræðingar hans vonast til þess að leysa úr vandamálinu fljótlega en Sanchez var dæmdur í 16 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir skattsvik er hann var leikmaður Barcelona.

New Style, New Season 💪🏽⚽️ Nuevo look , Nueva temporada 💪🏽

A post shared by Alexis Sanchez (@alexis_officia1) on


Athugasemdir
banner
banner
banner