Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. júlí 2018 12:54
Elvar Geir Magnússon
Í beinni: Guðni Bergs situr fyrir svörum - Hver eru næstu skref?
Fundur hefst 13:15
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 13:15 verður fréttamannafundur KSÍ í höfuðstöðvum sambandsins í Laugardal.

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, situr fyrir svörum í ljósi frétta dagsins.

Fundurinn verður sýndur í beinni á heimasvæði okkar á Facebook og þá verður bein Twitter lýsing frá öllu því helsta sem gerist.

Í morgun var staðfest að Heimir Hallgrímsson væri hættur sem landsliðsþjálfari.

Heimir hélt fréttamannafund sjálfur fyrir hádegi þar sem hann ræddi um þessa ákvörðun sína. Þann fund má nálgast í heild sinni með því að smella hérna.

Hver verða næstu skref KSÍ? Það þarf að hafa hraðar hendur í ráðningarmálum því Ísland hefur leik í Þjóðadeildinni gegn Belgíu, bronsliði HM, þann 11. september.

Bein textalýsing frá fundinum er á heimasvæði @Fotboltinet á Twitter og þá er hægt að sjá lýsinguna hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner