Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 17. júlí 2018 14:25
Hafliði Breiðfjörð
Guðni Bergs: Ef þú ert með einhver nöfn þá máttu senda þau á mig
Icelandair
Guðni á fréttamannafundi í dag.
Guðni á fréttamannafundi í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum að taka saman nöfn og velta fyrir okkur framhaldinu. Við erum með erlendan og innlendan lista," sagði Guðni Bergsson formaður KSÍ í dag um ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara en Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt að hann sé hættur með liðið.

„Við erum ákveðna hugmyndafræði sem við viljum að sé höfð í heiðri við að finna rétta arftakann og hvað sá þjálfari myndi koma með inn í þennan samheldna hóp. Það er mikilvægt að hann geri sér grein fyrir forsögunni og fyrir hvað það stendur."

Guðni segir að nú sé vinna við ráðningu á eftirmanni Heimis að hefjast innan knattspyrnusambandsins.

„Þetta er gert í samvinnu og samráði við stjórn KSÍ og ég mun leiða þá vinnu sem formaður og með minn bakgrunn sem knattspyrnumaður. Við gerum þetta í sameiningu en vöndum okkur við þetta," sagði Guðni.

„Ef þú ert með einhver nöfn þá máttu senda þau á mig á [email protected]. Ekki málið. Það er fínt að fá hugmyndir allra innan KSÍ. Við munum hlusta á alla en svo munum við þrengja hringinn og einbeita okkur að tilteknum hópi sem við ræðum við um framhaldið."

Guðni útilokaði ekki að ráða íslenskan þjálfara en það skýrist frekar þegar vinnan hefst. Hann sagðist búast við fullt af umsóknum og að rætt verði við erlenda tengiliði sambandsins en nánar er rætt um það í sjónvarpinu að ofan.
Heimir hættur - Fréttamannafundurinn í heild sinni
Heimir hættur: Sjáðu fund Guðna Bergs í heild sinni
Heimir strax eftir fundinn: Leið hræðilega í morgun - Hringi núna í Aron Einar
Athugasemdir
banner
banner