Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. júlí 2018 15:22
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Sky: Liverpool neitar að hafa boðið í Alisson
Endar Alisson í Liverpool eða ekki?
Endar Alisson í Liverpool eða ekki?
Mynd: Getty Images
Sky fréttastofan segir að samkvæmt þeirra heimildum sé ekkert til í fréttum þess efnis að Liverpoool hafi boði 70 milljónir evra í Alisson Becker markvörð Roma á Ítalíu.

Ítalskir fjölmiðlar fullyrtu þetta fyrr í dag og sögðu viðræður í fullum gangi þó Roma vildi fá 75 milljónir punda fyrir leikmanninn..

Sky Sports News segir svo nú að heimildarmenn þeirra innan Liverpool fullyrði að ekkert tilboð hafi verið gert í Alisson, engar viðræður séu í gangi né plön um slíkt.

Alisson er 25 ára gamall og spilaði 49 leiki með Roma í fyrra. Liðið féll út úr Meistaradeildinni eftir undanúrslitaleiki við Liverpoool. Hann var aðalmarkvörður Brasilíu á HM í Rússlandi í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner