Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Ashley Cole í þjálfaralið Chelsea?
Ashley Cole.
Ashley Cole.
Mynd: Getty Images
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn Ashley Cole gæti verið á leið í þjálfaraliðið hjá Chelsea.

Cole birti í dag mynd á Instagram þar sem hann segist vera á leið til Japan en lið Chelsea er þar í æfingabúðum.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, er sagður vilja fá Cole í þjálfaralið sitt.

Hinn 38 ára gamli Cole spilaði með Chelsea frá 2006 til 2014 þar sem hann var liðsfélagi Lampard.

Cole spilaði með Derby síðari hlutann á síðasta tímabili eftir að hafa verið hjá LA Galaxy þar á undan.
Athugasemdir
banner
banner
banner