Willum Þór Willumsson átti að vera í byrjunarliði BATE Borisov þegar liðið mætti Piast Gliwice í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Willum meiddist í upphitun og gat því ekki spilað í kvöld. BATE var aðeins með sex leikmenn á varamannabekknum eftir að Willum meiddist. Willum fer í myndatöku á morgun en meiðslin eru ekki talin alvarleg.
BATE lenti undir þegar Jakub Czerwinski skoraði með skalla. BATE jafnaði leikinn og einvígið á 82. mínútu þegar varamaðurinn Hervaine Moukam skoraði úr vítaspyrnu.

Á 87. mínútu tryggði svo Zakhar Volkov BATE sigurinn með skallamarki.
BATE mætir Rosenborg í næstu umferð keppninnar. Fyrri leikurinn fer fram í Hvít-Rússlandi eftir viku.
Athugasemdir