fös 17. júlí 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Akinfenwa framlengir við Wycombe - Spilar í Championship
Mynd: Getty Images
Adebayo Akinfenwa er 38 ára gamall og þykir einn sterkasti knattspyrnumaður heims. Hann er búinn að framlengja samning sinn við Wycombe Wanderers um eitt ár og mun því spila með félaginu í Championship deildinni á næstu leiktíð.

Hann hefur leikið fyrir Wycombe undanfarin ár sem hafa verið söguleg fyrir félagið. Wycombe fór úr því að vera fallbaráttulið í D-deildinni yfir í að vinna umspilið í C-deildinni á aðeins sex árum.

Akinfenwa gekk í raðir Wycombe 2016 og hefur skorað 54 mörk í 176 leikjum fyrir félagið. Akinfenwa er helmassaður sóknarmaður og skoraði 10 mörk í 35 leikjum á nýliðinni leiktíð.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Wycombe eða Akinfenwa spila í Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner