Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður ÍBV í Pepsi-deild kvenna, var auðvitað í skýjunum með 1-0 sigur liðsins á Val í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 ÍBV
Bryndís kom til ÍBV frá Þór/KA á láni í lok júlí og fagnar því að vera komin aftur til Eyja.
„Þetta var iðnaðarsigur. Ég mætti á leikinn hjá köllunum í gær og ákvað að fá mér hamborgara hérna hjá Fálkunum og hann hefur greinilega skilað sér í dag," sagði Bryndís við Fótbolta.net.
„Þær voru mjög þéttar og mér finnst í síðustu leikjum við búnar að þétta varnarleikinn. Þær fengu ekkert mörg dauðafæri fyrir utan fyrsta korterið en þær voru mjög duglegar."
„Við þurfum að taka inn í dæmið að hálft liðið var uppi á spítala og allar meiddar en ég gaf þeim lýsi og þær hresstust allar við."
„Mér líður ógeðslega vel í Eyjum og þetta er mitt annað heimili og það er æðislegt," sagði hún ennfremur.
Bryndís hefur verið að æfa spjótkast í vetur og hefur spilað fótbolta á sumrin.
„Spjótið var mikilvægt í vetur hjá mér og gott að taka sér pásu frá fótboltanum og fara í eitthvað annað. Það er lítið eftir af fótboltanum og ég er bara að einbeita mér að því," sagði hún í lokin.
Athugasemdir