Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. ágúst 2018 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Swansea tókst að halda hreinu gegn Birmingham
Swansea var í nauðvörn gegn Birmingham
Swansea var í nauðvörn gegn Birmingham
Mynd: Getty Images
Birmingham 0 - 0 Swansea

Birmingham og Swansea gerðu markalaust jafntefli, 0-0, er liðin mættust á St. Andrews leikvanginum í Birmingham í kvöld.

Heimamenn voru töluvert betri aðilinn í leiknum og áttu mörg hættuleg færi í fyrri hálfleik. Liðið kom boltanum í netið en það var dæmt af eftir að brotið var á Erwin Mulder markverði Swansea.

Swansea tókst að halda út og ná í eitt stig á útivelli en heimamenn hljóta að vera ósáttir við úrslitin.

Birmingham er með tvö stig eftir þrjá leiki á meðan Swansea hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli og er því með sjö stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner