Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. ágúst 2018 17:15
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Chelsea og Arsenal
Laugardagur 16:30
Mynd: Guardian
Það er Lundúnarslagur í ensku úrvalsdeildinni klukkan 16.30 á morgun, laugardag.

Maurizio Sarri og lærisveinar í Chelsea taka á móti Arsenal undir stjórn Unai Emery. Markalaust jafntefli var niðurstaðan þegar þessi lið áttust við á Stamford Bridge á síðasta tímabili en það mun vonandi ekki endurtaka sig!

Emery hefur gefið í skyn að Lucas Torreira gæti byrjað sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni. úrúgvæinn ætti að koma með meira „stál" inn á miðjuna hjá Arsenal.

Eden Hazard er í líklegu byrjunarliði Chelsea eftir að hafa komið inn sem varamaður í 3-0 sigrinum gegn Huddersfield í fyrstu umferð.

Arsenal vonast til að veita meiri mótspyrnu en liðið gerði gegn Manchester City í fyrstu umferð.

Nacho Monreal er að koma til baka eftir hnémeiðsli og er í líklegu byrjunarliði hjá þeim rauðu. Hann kemur þá inn fyrir Ainsley Maitland-Niles sem spilar ekki næstu sex vikurnar hið minnsta.

Petr Cech heldur sæti sínu í markinu en Sead Kolasinac og Carl Jenkinson eru enn á meiðslalistanum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner