Tveir leikir fóru fram í Pepsi-deild kvenna í kvöld en Þór/KA vann risastóran sigur á FH, 9-1. ÍBV vann Val 1-0 á sama tíma.
ÍBV lagði Val 1-0 með marki frá Cloé Lacasee á 49. mínútu og þar við sat.
Eyjakonur eru í fimmta sæti með 18 stig en Valur í þriðja sæti með 26 stig.
Þór/KA slátraði þá FH 9-1 á Akureyri. Sandra Stephany Mayor Gutierrez skoraði þrennu. Andrea Mist Pálsdóttir og Margrét Árnadóttir gerðu tvö mörk og þá gerðu þær Lára Einarsdóttir og Sandra María Jessen sitt hvort markið áður en Helena Ósk Hálfdánardóttir minnkaði muninn fyrir FH undir lokin.
Þór/KA er í efsta sæti deildarinnar með 35 stig en FH á botninum með 6 stig.
Úrslit og markaskorar:
Valur 0 - 1 ÍBV
0-1 Cloé Lacasse ('49 )
Þór/KA 9 - 1 FH
1-0 Andrea Mist Pálsdóttir ('18 )
2-0 Andrea Mist Pálsdóttir ('40 )
3-0 Lára Einarsdóttir ('49 )
4-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('58 )
5-0 Sandra María Jessen ('60 )
6-0 Margrét Árnadóttir ('62 )
7-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('65 )
8-0 Margrét Árnadóttir ('72 )
9-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('87 )
9-1 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('89 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir