Pétur Pétursson, þjálfari Vals í Pepsi-deild kvenna, var allt annað en sáttur með spilamennsku liðsins í 1-0 tapinu gegn ÍBV í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 ÍBV
Cloé Lacasse gerði eina mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks en Valsliðið átti þó mörg dauðafæri í byrjun leiksins en tókst ekki að nýta þau.
Valur er í þriðja sætinu með 26 stig og óhætt að segja að liðið er á góðri leið með að stimpla sig alfarið úr toppbaráttu.
„Þetta var lélegasti leikur sem við höfum spilað síðan ég kom hingað. Þó við höfum skapað okkur fjögur eða fimm dauðafæri til að skora í þessum leik þá var spilamennskan skelfilega léleg," sagði Pétur við Fótbolta.net.
„Við byrjuðum vel og fengum eitt eða tvö dauðafæri til að skora, nýttum það ekki og síðan var ekkert meira í fréttum."
„Það var ekkert lið á vellinum í dag nema á ákveðum tíma í leiknum og þær voru bara arfaslakar," sagði hann í lokin.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir