Breiðablik og Stjarnan mætast í úrslitaleik Mjólkurbikar kvenna klukkan 19:15 í kvöld.
Stuðningsmenn Breiðabliks ætla að hittast klukkan 17:00 í tjaldi við félagssvæði Þróttar í Laugardal og þar verður hitað upp.
Stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að hittast á Samsung-vellinum í Garðabæ klukkan 17:00 og hita upp. Um það bil klukkutíma fyrir leik verða fríar rútuferðir þaðan á Laugardalsvöll.
Breiðablik leikur í hvítum varabúningum sínum í kvöld en Stjarnan verður í hefðbundnum bláum treyjum sínum.
Miðasala á leikinn er í gangi á tix.is
Athugasemdir