Asmir Begovic, markvörður Bournemotuh, er hæstánægður með Ryan Fraser, Callum Wilson og Josh King í framlínu liðsins.
Bournemouth vann Leicester 4-2 um helgina þar sem Fraser skoraði tvö mörk og Wilson eitt.
Begovic segir að sóknarlína Bournemouth jafnist á við sóknartríó Liverpool, þá Mohamed Salah, Sadio Mane og Roberto Firmino.

„Okkar þriggja manna sóknarlína jafnast á við allar sóknarlínur í deildinni," sagði Begovic. „Við erum sóknarlið. Við viljum sækja og skora mörk."
„Þeir jafnast á við þriggja manna framlínu Liverpool þegar þeir eru á góðum degi. Það hentar þeim vel hvernig við spilum. Þeir hafa frábæran skilning og vonandi heldur það lengi áfram."
Athugasemdir