„Það voru mikil vonbrigði hvernig við komum inn í þennan leik,“ sagði Þórhallur Víkingsson, þjálfari HK/Víkings eftir 5-1 sinna kvenna gegn ÍBV. „Ég var að vona að við kæmum svolítið afslappaðar en samt grimmar inn í leikinn og gera meira en við gerðum. Við gerðum eiginlega ekkert í þessum leik.“
Lestu um leikinn: ÍBV 5 - 1 HK/Víkingur
Umdeilt atvik átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks þegar leikmaður HK/Víkings lá í jörðinni eftir samstuð og augljóst að um höfuðmeiðsli væri að ræða. Ragnar Þór Bender dæmdi ekkert og barst boltinn aftur inn í hættusvæðið og komst ÍBV í 4-0. „Dómararnir eiga misjafna leiki eins og leikmennirnir. Mér fannst svona eins og að ef við hefðum farið með 3-0 í hálfleik að það hefði verið önnur staða en 4-0. Það voru ýmsir möguleikar fram á við fyrir okkur og við hefðum ekkert hætt þannig lagað. En mér fannst fjórða markið dómaramistök. Í fyrsta lagi þá keyrir Eyjastelpan inn í minn mann og hún fær höfuðhögg og þá áttu alltaf að stoppa leikinn.“
HK/Víkingur vann fyrri leik liðana og stóð ekki á svörum þegar Þórhallur var spurður hver munurinn væri á þessum leik og sigurleiknum fyrr í sumar: „Cloé.“
Þórhallur er heilt yfir ánægður með tímabilið og fer yfir af hverju í viðtalinu hér í spilaranum.
Athugasemdir