Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 17. október 2021 12:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Everton og West Ham: Mina og Coufal ekki með
Kurt Zouma var eitt sinn á láni hjá Everton
Kurt Zouma var eitt sinn á láni hjá Everton
Mynd: Getty Images
Everton og West Ham eigast við í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar kl 13. Leikurinn fer fram á Goodison Park í Liverpool, heimavelli Everton.

Það eru tvær breytingar á byrjunarliði Everton sem gerði jafntefli gegn Man Utd í síðustu umferð. Seamus Coleman og Alex Iwobi koma inn í liðið en Yerry Mina er nýkominn úr landsliðsverkefni með Kólumbíu og er því ekki með í dag. Þá sest Anthony Gordon einnig á bekkinn.

Það er ein breyting á liði West Ham frá 2-1 tapi gegn Brentford í síðustu umferð. Coufal er tæpur og Ben Johnson kemur inn í hans stað.

Everton: Pickford, Digne, Coleman, Keane, Godfrey, Allan, Doucoure, Iwobi, Gray, Townsend, Rondon.

West Ham: Fabianski, Cresswell, Johnson, Zouma, Ogbonna, Soucek, Rice, Fornals, Benrahma, Bowen, Antonio.
Athugasemdir
banner
banner
banner