Fotbolti.net
17.10.22 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Fara í lífstíðarbann fyrir að kasta mynt í Guardiola

Pep Guardiola

Pep Guardiola

Canon

Mynd: EPA

Liverpool ætlar að setja þá stuðningsmenn sem köstuðu mynt í Pep Guardiola, stjóra Manchester City, í lífstíðarbann en þetta segir talsmaður félagsins í viðtali við breska miðla.
Í gær kvartaði Manchester City yfir þeirri hegðun sem stuðningsmenn Liverpool sýndu af sér á meðan leik stóð og í kjölfarið var greint frá því í miðlum á Englandi.

Stuðningsmennirnir köstuðu mynt í átt að Guardiola en stjórinn staðfesti það svo eftir leik. Hann kom jafnframt inná það að þeir hefðu misst marks og ættu að gera betur.

Liverpool ætlar að setja þá stuðningsmenn sem köstuðu myntinni í lífstíðarbann.

„Við erum meðvitaðir um atvikið þar sem hlutum var kastað í boðvanginn á leiknum í dag. Þetta er algjörlega óásættanleg hegðun og eitthvað sem við tökum ekki í mál hér á Anfield."

„Atvikið verður rannsakað með því að skoða gögn úr eftirlitsmyndavélum og þeim sem eiga sök í þessu máli verður refsað með lífstíðarbanni á Anfield og mögulegu banni frá því að mæta alfarið á fótboltaleiki,"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.