Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er á leið í eins leiks bann eftir að hafa fengið rauða spjaldið í 1-0 sigrinum á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Klopp missti sig á 85. mínútu eftir að Anthony Taylor og aðstoðardómarar hans dæmdu ekki brot á Bernardo Silva sem reif Mohamed Salah niður á vængnum.
Þegar endursýning er skoðuð af atvikinu er skiljanlegt að Klopp hafi verið ósáttur enda var þetta nokkuð augljóst brot.
Klopp lét línuvörðinn heyra það og mótmælti harðlega áður en Taylor sótti rauða spjaldið úr vasanum og sendi Klopp inn í klefa.
Hann er á leið í eins leiks bann en hann tekur fulla ábyrgð á hegðun sinni, en spyr þó spurninga í leiðinni.
„Við getum fara fylgst með og sætt okkur við það sem dómararnir gera en á þessu augnabliki snappaði ég. Það var mér að kenna og vonandi getum við verið sammála. Þið þarna á Match of the Day hafið tíma til að skoða stöðuna og það getur vonandi einhver í stúdíóinu fundið útskýringu á því af hverju það var ekki dæmt brot í þessu atviki," sagði Klopp.


