Fotbolti.net
17.10.22 - 10:19
Elvar Geir Magnússon

Óskar Taylor til hamingju með frábæra frammistöðu á Anfield

Anthony Taylor.

Anthony Taylor.

Canon

Mynd: Getty Images

Mike Dean, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, segist ætla að senda Anthony Taylor skilaboð og óska honum til hamingju með „frábæra frammistöðu" með flautuna í 1-0 sigri Liverpool gegn Manchestet city í gær.

Taylor dæmdi mark af Manchester City eftir að brot Erling Haaland á Fabinho var dæmt í aðdragandanum. Seinna gaf Taylor svo Jurgen Klopp, stjóra Liverpool, rauða spjaldið.

Klopp, Guardiola og Bernardo voru allir ósáttir við Taylor dómara í viðtölum eftir leik en Dean var hinsvegar mjög hrifinn af frammistöðu hans.
„Ég vildi ekki trufla Anthony Taylor svo stuttu eftir leikinn en ég ætla að senda honum skilaboð og óska honum til hamingju með frábæra frammistöðu á Anfield. Hvernig hann höndlaði þennan stórleik gerði hann bara enn betri," segir Dean.

„Hann dæmdi ekki á neinn óþarfa og leyfði leiknm að fljóta, en refsaði samt þeim sem fóru klárlega yfir strikið. Darren England var líka flottur sem VAR dómari, til dæmis með því að mæla með því að Taylor myndi skoða brotið í aðdragandanum að marki Phil Foden. Talor gat ekki séð brot Haaaland á Fabinho frá sinni stöðu. Þetta var klár aukaspyrna."

Mike Dean hætti að dæma úti á velli eftir síðasta tímabil en er sérhæfður VAR dómari í dag.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+413
3Brighton5+1110
4Leeds6+410
5Brentford5+69
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.