Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   mán 17. október 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Salah vill berjast um titilinn - „Þurfum ekki að finna fyrir þeirri pressu"
Mohamed Salah vill titilinn
Mohamed Salah vill titilinn
Mynd: EPA
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigrinum á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Salah byrjaði tímabilið mjög vel en hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið eða þangað til hann kom inná á móti Rangers í Meistaradeildinni.

Hann skoraði þrennu á sex mínútum í þeim líka og fylgdi því á eftir með frábærri frammistöðu gegn Man City þar sem hann gerði sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Liverpool er fjórtán stigum frá toppnum en Salah er með það sem persónulegt markmið að berjast um titilinn.

„Við þurfum ekki að hugsa um titilinn í augnablikinu en persónulega þá elska ég að vera að spila alltaf um hann."

„Í hausnum á mér ætla ég að berjast um hann en við þurfum að einbeita okkur að einum leik í einu."

„Við þurfum ekki finna fyrir þeirri pressu að það er enn bil á milli okkar og þeirra liða sem eru í fyrsta og öðru sæti en auðvitað ætlum við að berjast um titil."

„Við sem leikmenn og sem lið ættum að vera í betri stöðu. Leikmennirnir eru spenntir fyrir því að vinna og það gefur okkur mikið þegar við förum inn í næstu leiki,"
sagði Salah.
Slapp
banner