Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, er enn ósigraður á Anfield frá því hann kom fyrst til félagsins, en hann spilaði í vörn liðsins í 1-0 sigrinum á Manchester City í gær.
Van Dijk og Joe Gomez spiluðu frábærlega í vörn Liverpool og náðu að halda hreinu.
Mohamed Salah skoraði sigurmarkið en Van Dijk og Gomez sáu um að halda Erling Braut Haaland í skefjum.
Van Dijk kom til Liverpool í byrjun árs 2018 og hefur spilað 69 leiki á Anfield og ekki tapað einum þeirra.
„Það þurfti mikið til að fá öll stigin. Þetta var alltaf að fara að vera spennandi lengur. Við spiluðum frekar vel í fyrri hálfleik og gáfum ekki of mörg færi á okkur."
„Í seinni hálfleik þurftum við að verjast aðeins meira en við unnum og það er það mikilvægasta."
„Bæði lið þurftu að hlaupa mikið, það var mikið um samskipti og hvaða lið vildi þetta meira. Við sýndum mikla baráttu og ef þú slakar á bara smá þá munu þeir refsa þér. Það var því mikilvægt að halda hreinu."
Andrúmsloftið var rafmagnað á Anfield eins og svo oft áður en Van Dijk segir að liðið þurfi þennan stuðning út tímabilið.
„Þetta er alltaf svona. Þegar eitthvað gerist í leiknum þá er það eins og að hella olíu á eldinn, sem er jákvætt fyrir okkur. Stuðningsmennirnir spiluðu stóra rullu og þetta er það sem við þurfum út tímabilið, sérstaklega eftir erfiða byrjun," sagði hann í lokin.

