Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. nóvember 2018 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Henderson segir að leikmenn vilji hefnd gegn Króatíu
Jordan Henderson ræðir við Gareth Southgate
Jordan Henderson ræðir við Gareth Southgate
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, leikmaður enska landsliðsins, segir að liðið vilji hefna fyrir undanúrslitaleikinn á HM í sumar er liðið mætir Króatíu í Þjóðadeildinni á morgun.

Króatíska liðið henti Englendingum úr leik í undanúrslitum á HM í sumar en liðið hafði betur í framlengingu.

Henderson segir að leikmenn enska landsliðsins eru mjög vel gíraðir fyrir leikinn og að þeir ætli að hefna fyrir tapið.

Enska liðið gerði markalaust jafntefli við Króatíu í fyrri leiknum í Rijeka en nú vilja leikmennirnir taka sigur á Wembley.

„Þessi ósigur mun alltaf lifa með okkur. Það var í undanúrslitum á HM en við höfum þroskast mikið síðan þá," sagði Henderson.

„Við verðum að halda áfram að skapa hluti á sunnudag," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner