Íslenska U21 árs landsliðið mætir Kína klukkan 11:35 í dag en liðin taka þátt í æfingamóti í Wanzhoun í Kína.
Íslenska liðið tapaði fyrsta leik riðilsins fyrir Mexíkó, 2-0 og er þetta annar leikurinn.
Kína vann Tæland 1-0 og á íslenska liðið því möguleika að koma sér aftur í baráttuna með sigri í dag.
Leikur dagsins:
11:35 Kína U21 - Ísland U21
Athugasemdir